Færsluflokkur: Bloggar
Sandkassaleikur
22.1.2008 | 13:11
Hver skyldi nú stjórna borginni á meðan að starfsfólk ráðhússins er í sandkassaleik? Enda er borgin alveg hræðilega ömurlega skítug og ljót. Brunarústir og hálfniðurrifin hús, veggjakrot út um allt og drasl. Nei það er betra að vera í valdabaráttu og láta okkur skattgreiðendur borga brúsann. Hvað kostar það okkur þessi skrípaleikur?
Var ekki búið að selja húsin við Laugarveg og málið var dautt. Þurfum við nú að fara að borga háar upphæðir í skaðabætur af því að einhverjum datt allt í einu í hug að gaman væri að friða þessar fúnu spýtur. Mátti ekki ath. það áður en selt var. Persónulega finnst mér að Laugarvegurinn og bærinn í kring ætti að vera í gamla stílnum með láreistum og sætum húsum, en við þurfum ekki að friða allt. Það má bara byggja í gamla stílnum (miklu ódýrara fyrir alla)
Hvenær á svo að klára þetta mál með brunarústirnar á Lækjartorgi????? og hvað kostar það nú okkur??
HÆTTIÐ ÞESSUM SANDASSALEIK OG FARIÐ AÐ VINNA VINNUNA YKKAR
Bloggar | Breytt 23.1.2008 kl. 08:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
88 dagar til jóla....
27.9.2007 | 21:30
Það eru 88 dagar til jóla og ég er ekki byrjuð að gera neitt. Á eftir að baka og kaupa allar jólagjafirnar og þrífa húsið og mála vegginn og ........ ég vildi bara hrella ykkur aðeins.
Nei, í mínum huga er sumarið rétt að enda, samt er ég að fara að brúnka mér eins og konan sagði og lagðist í sólbað. Við förum rétt bráðum til Egiptalands og komum brún og afslöppuð til baka og tökum á móti jólunum með bros á vör.Hér verður ekkert stress fyrir jólin.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Heilsufæði
27.9.2007 | 20:05
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Gömlu hjónin
4.9.2007 | 19:09
Þar sem að ég stóð við gluggann í vinnunni með kaffi bollann í hendinni og horfði út í rokið mikla í morgun sá ég þar gömul hjón koma akandi og var hann greinilega að keyra sína. Hún gat ekki opnað hurðina vegna veðurs. Hann vippar sér út og ætlar að hjálpa sinni en réði ekki við rokið svo að hann fauk og dinglaði þarna haldandi sér í húninn. Hún vissi ekki hvað hafði orðið af honum því að hún sá hann ekki. Hún reynir að opna hurðina og svisss...... hurðin fauk upp og hún næstum því með, nema náði að halda sér í öryggisbeltið svo að þarna dingluðu gömlu hjónin eins og fánar í roki, og ég pissaði á mig við gluggann.
Ég meina hvað er fólk að gera út í svona veður ??
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Haustið komið ?
2.9.2007 | 21:38
1.sept. er alltaf í uppáhaldi hjá mér. Ég veit ekki af hverju það er. Við stórfjölskyldan sem sagt foreldrar mínir, systur og makar vorum vön að halda upp á 1 spes eins og við kölluðum það og fórum jafnvel út á land á Hótel og eitthvað fínt út að borða, en nú er það hætt og eru margar ástæður fyrir því.
1.sept 1976 fluttum við út til Svíþjóðar og þann morgun var allt frosið fast. Við þurftum að skafa af bílnum og það var hálka á Reykjanesbrautinni en þegar við komum til Svíþjóðar var 27 stiga hiti og sól. Í gær var ekki frost heldur milt og að vísu rakt veður en dagurinn í dag var mjög fallegur og hlýr og ekki hægt að merkja neitt haust þótt svo að það sér með réttu komið.
Ég er mjög hrifin að september, mér finnst hann svo sjarmerandi með alla þessa fallegur liti í náttúrunni og myrkur á kvöldin. Svo get ég líka sagt að í næsta mánuði fer ég til Egiptalands (ég hlakka svo til að fara) þá er tíminn miklu fljótari að líða.
Ég er hætt að vera svona rosa þreytt vegna vinnunar og er bara næstum því búin að læra allt sem að ég þurfti að læra. Það voru sem sagt ekki allar heilafrumurnar dánar eins og ég hélt fyrst og er ég bara frekar montin með mig þessa dagana, enda lífið bara frábært.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Verslunin B.Laxdal
1.9.2007 | 21:07
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ný vinna
21.8.2007 | 18:54
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Tónleikar
19.8.2007 | 14:38
Tónleikarnir á Laugardalsvellinum voru hreint frábærir og vandaðir í alla staði nema lokaatriðið. Hljómsveitin Stuðmenn báru ekki nafn með rentu, þeir voru hreint út sagt LÉLEGIR . Allir hinir sem að komu fram gerðu sitt besta en ekki Stuðmenn. Ég hef verið mikill aðdáandi Stuðmanna í gegnum árin en þarna grófu þeir sína gröf sjálfir og ættu að skammast sín og hætta. Mér sýndist Björgvini H. heldur ekki vera skemmt.
Tónleikarnir á Klambratúni voru góðir og gaman að sjá aftur gömul andlit. Hljómsveitin Mannakorn hefur engu gleymt og Ellen er alltaf jafn sæt. Það var yndislegt að sjá heilu fjölskyldurnar sitja úti á teppi með létta drykki og kertaljós og njóta góðra tónlistar í góðu veðri. Það var áberandi hvað var mikil kyrrð og góður andi yfir öllu. Þarna voru vagnabörn og upp í 90 ára að skemmta sér saman. MEIRA AF ÞESSU TAKK.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Hávaði frá verktökum
9.8.2007 | 19:23
Það er verið að byggja nýtt hús á gömlum grunni við hliðina á mínu húsi eða alveg upp við veggina hjá mér. Það er borað og brotið, hamrað og hent til hlutum svo að allt nötrar inni hjá mér. Ég get ekki tala í síma eða hlustað á TV. nema að hækka allt í botn. Er komin með krónískan höfuðverk og hundurinn þorir ekki út á svalir út af dynkjum og látum. Hver er minn réttur? Ég er búin að fara og segja þeim að taka tillit til mín en þeir(verktakarnir) segjast mega vera að til kl:22:00
Er þetta rétt? er ekkert tillit tekið til nágrannan? ef að einhver veit betur þarna úti þá endilega láttu mig vita.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hreinskilni/siðblinda
30.7.2007 | 20:00
Vinkona mín er að tala um siðblint fólk og siðblindu almennt en hvað þá um hreinskilni. Að vera hreinskilin telja margir að sé gott en þar er ég ekki sammá. Það er kúnst að vera hreinskilin. þú hefur ekki leyfi til að segja þína skoðun og vera hreinskilin ef að það særir viðkomandi. Sérstaklega ef að viðkomandi hefur ekki spurt þig álits. Enn ef að viðkomandi spyr þig álits getur þú sagt t.d. mér finnst... eða ég mundi gera... ...Allt of margir segja sína skoðun og eftir situr særður einstaklingur. Ef að þú villt vera nastí skaltu vera hreinskilin og láta alla heyra það óumbeðin.
Stundum er betra að segja ekki neitt en ef að maður er spurður getur maður bara sagt: veistu ég hef enga skoðun á þessu!!! og tala um eitthvað annað.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)